Glæsilegur blómvöndur einstaklega haustlegur með rauðum rósum, eucalypthus berjum og öðru.
Tjáðu ást þína! Komdu ástinni þinni á óvart með stórkostlegum blómvendi. Þessi ógleymanlegi vöndur skilur eftir sig agndofa tilfinningu. Rósavendir segja "Ég elska þig" meira en nokkur lýsandi orð geta gert. Fullkomin gjöf fyrir hann/hana, afmæli, eða til hamingjuóska.
Lýsing:
þessi blómvöndur inniheldur íslenskar rósir og haustlegt grænt efni.
-
*
-
-
*
-
-
-
-
-
-
-
M- 7 rósir - autum greenery
L- 10 rósir - autum greenery
XL-14 rósir - autum greenery
fullt af grænu
Sjá um blóm:
Fersku afskornu blómin okkar geta fært heimilinu þínu birtu og hlýju.
Hér eru nokkur ráð til að aðstoða þig við að halda þeim ferskum og fallegum lengur.
- Áður en að blómin eru sett í vasa er mikilvægt að þrífa vasann vel með heitu vatni og sápu, skola svo vasann vel. Það kemur í veg fyrir örverumyndun sem heldur þá vatninu hreinu.
- Fjarlægið öll laufblöð sem annars myndu fara ofan í vatnið. Ef að laufblöðin rotna í vatninu skapar það hættu á bakteríu myndun sem kemur í veg fyrir að blómið nái að drekka upp vatn með endunum.
- Ef það fylgdi næring með blómunum notið þá bara smá af henna, aldrei hella öllum pakkanum í einu fyrir lítinn blómvönd. Einnig er hægt að útbúa heimagerða næringu með því að setja 1-3 dropa af klór út í vatnið.
- Sum blóm hvorki þurfa né vilja næringu þannig ef að ekki fylgdi með næring þá megið þið ekki nota afgangs næringu sem til er heima því það gæti mögulega skaðað blómin.
- Til að lengja líf blómanna er ráðlagt að skera 2-3cm neðan af stilkunum á 2-3 daga fresti með 45 gráðu halla skurði með beittum hníf og skipta um vatn. Með því að gera þennan skáskurð aukum við flötinn sem blómið hefur til vatnsinntöku. Reynið að komast hjá því að kremja stilkinn þegar hann er skorinn. Fyrir þykkari stilka er gott að nota garðklippur. Gott er að þrífa vasann aftur með heitu vatni og sápu eða klór til að fjarlægja mögulega örverumyndun.
- Afskorin blóm endast lengur við svalara hitastig. Látið þau ekki standa í beinu sólarljósi eða á mjög heitu svæði eins og upp við ofna en við viljum heldur ekki velja stað sem er mikill kuldi eins og t.d upp við glugga eða hurð yfir vetrartímann.
- Forðist að geyma blómin nálægt ávöxtum þar sem þeir gefa frá sér ethylene gas sem flýtir fyrir öldrun blómanna.
Njótið blómanna ykkar
Í Húsi Blóma
Vinsamlegast athugið að framboð afskorinna blóma er árstíðabundið og því ekki hægt að lofa því að allar tegundir á myndinni séu til á hverjum tíma en blómaskreytarnir okkar velja þá falleg blóm í staðinn í svipuðum lit, gæðaflokki og verði. Ef að pöntunin þín inniheldur aðrar vörur eins og vasa, gjafakörfu eða gjafapoka þá reynum við eftir bestu getu að velja það sem kemst því næst ef viðkomandi vara er ekki til.