Samúð

Jarðarfara blóm, standandi skreytingar, kistuskreytingar, kransar, kertaskreytingar og aðrar viðeigandi gjafir. 

Í húsi blóma býður upp á eitt mesta úrval af samúðar og jarðarfarar blómum á höfuðborgarsvæðinu og mörgum öðrum þéttbýliskjörnum á landinu. Flokkur blómaskreytinga okkar hefur hannað sérstætt úrval af jarðarfararblómum, viðeigandi fyrir þjónustuna, kirkjugarðinn, kistulagninguna eða fyrir póstsendingar til heimilis eða vinnustaðar. Við getum jafnvel boðið upp á sérstaka blómaskreytingu fyrir ástvininn þinn. Við bjóðum þér að koma í blómabúðina okkar Í húsi blóma í Grafarvogi, Reykjavík eða skoða heimasíðu okkar www.ihusibloma.com til að sjá úrval okkar af samúðarblómum m.a. handgerðan standandi kross og hjarta skreytingu, útfararkransa, kistuskreytingar og græna og blómstarandi safnið okkar. Við bjóðum uppá samdægurs sendingar á útfararblómum á höfuðborgarsvæðinu og sendingar daginn eftir pöntun um land allt.

Skoða sem Línur Listi
Raða eftir
Sýna á síðu

Glæsileg kistuskreyting með hvítum liljum, rauðum og hvítum rósum, bláu krúsa og fl.-2 stærðir.

Mjög falleg kistuskreyting með ljósbleikum rósum, dökkbleikum gladíólum, hvítum liljum ásamt mismunandi hvítum og bleikum blómum og grænu. Hægt er að óska eftir öðrum blómum eða litasamsetningum. Reynt er að verða við öllum óskum eins og unnt er. Hafa ber í huga að afskorin blóm eru árstíðabundin og hver skreyting einstakt handverk. Innifalið í verði er akstur í kirkju. Vinsamlegast pantið með lágmark 2ja daga fyrirvara.
39.990 kr.

Fullskreytt Útfararhjarta opið í fjólubláum litum- rósir, silkivöndur og meira- 2 stærðir.

Opið hjarta skreytt með silkivendi, rósum og meira. Hjörtun eru um M-40-45 cm í þvermál og L-50-55 cm í þvermál. Hægt er að óska eftir öðrum blómum eða litasamsetningum. Reynt er að verða við öllum óskum eins og unnt er. Hafa ber í huga að afskorin blóm eru árstíðabundin og hver skreyting einstakt handverk. Tvískiptur borði með áletrun fylgir ekki með hjartanu. Borði kostar 3500isk. Venjan er að nafn hins látna sé sett öðru megin og kveðja hinum megin. Akstur í kirkju á höfuðborgarsvæðinu fylgir! Vinsamlegast pantið með lágmark 2ja daga fyrirvara!
29.990 kr.

Fullskreyttur útfararkrans í hvítum litum- hvítar íslenskar rósir, liljur, krýsi og fleira-3 stærðir.

Falleg leið til að sýna innilega samúð þína. Þessi ótrúlega fallegi krans er skreyttur með hvítum blómum eins og t.d. Liljum, Rósum, Krúsi o.f.l. Hafa ber í huga að afskorin blóm eru árstíðarbundin og hver skreyting einstakt handverk. Þennan fallega krans er hægt að senda í útfararstofu eða kirkju. Settur upp á vírastandi. Tvískiptur borði með áletrun fylgir ekki með öllum útfararkrönsum. Akstur í kirkju á höfuðborgarsvæðinu fylgir! Vinsamlegast pantið með lágmark 2ja daga fyrirvara!
39.990 kr.

Falleg rósaskreyting í hvítum potti með bleikum rósum, silkivendi og grænu efni.

Þessi einstaklega fallega skreyting sendir skilaboð um samúð og frið á þessum Erfiðum tímum. Inniheldur bleikar rósir og fullt af grænu efni sem lyftir skreytingunni upp á hærra plan. Hentar bæði send heim og til aðstandendaeða í kirkjuna. Hæð - 50cm.
14.990 kr.

Suðræn græn flamingó blómaskreyting með hvítum liljum í keramik potti.

Þessi suðræna græna blómaskreyting er glæsileg gjöf fyrir alla sem elska blóm sem endast lengi. Fullkomið fyrir afmæli, feðradaginn, útskrift, gæsapartí, nýfætt barn eða samúðargjöf. Hæð - 80 - 90cm
20.000 kr.

Klasískur blómvöndur með hvítum rósum með stilkum í stærð 35cm og brúðarslöri.

Sýndu ástúð þína með þessari glæsilegri samsetningu með hvítum rósum og brúðarslöri. Gerir þetta að fullkomnri gjöf fyrir útskrift, trúlofun, gæsa veislur, nýfætt barn eða samúðargjöf. Lýsing: þessi blómavöndur inniheldur hvítar rósir með stilkum í stærð 35-40 cm og brúðarslör.
12.990 kr.